Hver þarf áhugamál þegar hann hefur byssurnar..
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 febrúar
Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
07.02.2012 00:30:29 / Grænmetið

Djöfulli er langt síðan ég kom með slúður!!!

Um seinustu helgi fór ég niður í bæ í fyrsta skipti frá því um áramótin og var ég ekki einu sinni að drekka nema kannski 3 bjóra og yfirgaf pleisið eftir rúmlega klst!!
Er búinn að fara í ræktina hvern einasta laugardag og sunnudag seinustu 5 helgar og það er sko framför, þegar allt kemur til alls þá snýst lífið svolítið um það hversu mikið maður getur tekið í bekkpressu!! Nei svona án gríns, þeir sem eru þarna niður í bæ hverja einustu helgi eru svolítið fórnarlömb af íslenskri menningu. Hér á landi liggur beinast við fyrir vinahópa að fara niður í bæ saman, kvöldverður og kannski spil er alveg off og þekkist lítið í íslenskri menningu. Öll vötn liggja til 101 um helgar, sakna ég að fylgja strauminum? Sakna ég djammdrottninganna? Nei það geri ég ekki og ég er betur settur núna heldur en einhver djammprins!!

Bið ég vini mína sem eru á lausu að reyna eftir allra fremsta megni að halda sig frá djammdrottningunum nema málið snýst eingöngu um swing þá eru þær svo sem ágætar!! Vill líka benda vinum mínum á að það er miklu skemmtilegra/heilbrigðara að eyða stundum með stelpum edrú heldur en undir áhrifum áfengis, maður fær meira út úr því. Hefur verið viðloðandi þennan blessaða vinahóp minn að einu stundirnar sem einhver "rómantík(aldrei rómantík samt)" er í gangi er á milli 4-6 á föstudags og laugardagskvöldum. Að vakna þunnur við hliðin á djammdrottningu skilur lítið eftir sig myndi ég halda nema þá kannski sögustundir fyrir okkur hina! En ef þið lesendur góðir viljið endilega fara með einhverri djammdrottningu heim þá er ákveðin lína sem mikill meistari sagði mér frá og er víst ágæt fyrir það verkefni, línan hljómar eitthvað á þá leið:
" Eigum við ekki bara klára þetta samtal heima hjá mér? Það þarf ekki að gerast neitt og ég er ekki að leita mér að neinu " Seinni hlutinn á þessari línu er mikilvægastur og gagnkvæmt til þess að láta djammdrottningarnar ekki líða eins og þær séu lauslátar!! Þegar allt kemur til alls þá er það eitthvað sem þær vilja alls ekki að neinn haldi um sig það er sko alveg nóg að allir viti að þær eru alltaf í bænum. Eins og ég sagði áðan þá eru þessar píur álíka heillandi og íslensk veðrátta í janúar! Myndin crazy, stupid love sýnir líka vel hvernig maður á að meðhöndla djammdrottningarnar, fack hvað það er góð mynd og fack hvað Ryan Gosling er mikið meðetta!!!!!! 

Annars er nokkur mál sem ég vill koma af brjósti mér:

Lana Del Rey: Hún er mögulega love of my life! Búinn að vera að hlusta á nýju plötuna hennar og fack!! Miklar tilfinningar í lögunum hennar veita mér þessa ótrúlega vellíðan, ástin er falleg og það er gott að bera tilfinningar til einhvers og það hlýtur að vera markmið sem flestra. Lana Del Rey er greinilega með doktorspróf í tilfinningum og viðlagið í laginu born to die: 
"Come and take a walk on the wild side, let me kiss you hard in the pouring rain" Fær mig allan til þess að iða innra með mér. Gæti samt verið staðbundið við mínar tilfinningar eins og staðan er í dag og eitthvað sem að Lana Del Rey kallar því einungis fram í mér :)

Dómarar í ensku úrvalsdeildinni: Þeir eru aumingjar sem eru hræddir við Alex Ferguson, aldrei nokkurn tímann hef ég séð Man City fengið dæmdar tvær vítaspyrnur í leik! United hafa fengið tvær vítaspyrnur dæmdar í tveimur leikjum í röð og vafaatriði sem eru að falla með þeim leik eftir leik! Það er gaman að FA ætlar að halda spennu í ensku úrvalsdeildinni með að hjálpa þeim svona eins og þeir hafa verið að gera, það væri gaman að sjá hvernig Fergie myndi bregðast við þeim dómum sem að City hafa fengið á sig upp á síðkastið! En bara gaman að því að einhver spenna skuli vera í deildinni!!!

Crazy, stupid love: Geggjuð mynd btw og Ryan Gosling er svo mikill fagmaður!! Mynd sem kom mér geggjað á óvart og ég mæli með henni til allra sem að vilja horfa á góða skemmtilega mynd!! 

Blackburn og Steve Kean eru AUMINGJAR sem eru búnir að eyðileggja 2-3 umferðir fyrir mér í fantasy!!! Þvílíkir pappakassar og síðan eru menn eins og Kári Kongó að halda að þeir séu einhverjir godlike í fantasy, Blackburn eru bara aumingjar þetta er ekkert flókið og eins og Indian Cowboy segir þá mun þetta jafnast út! Afhverju byrjaði Grant Hanley ekki inn á hjá Blackburn, Persie hefði aldrei fengið allt þetta pláss og allan þennan tíma ef hann hefði verið til staðar!!
Þó svo að Blackburn eru aumingjar og vesalingar þá er maður í liði New York Giants sem heitir Blackburn sem náði geggjuðu interception í gær sem átti m.a. stóran þátt í að þeir unnu þessa ógeðis Patriots! Fyrsta skipti sem að mitt lið í súperbowl vinnur, 2012 bara að byrja vel!!! 

Hitti Guðjón Hrafn í gær í fyrsta skipti í langan tíma í gær fack hvað það var ánægjulegt að sjá drenginn! Guðjón Hrafn er mikill meistari og kom með hugmynd að hvernig maður leysir öll sín vandamál, ég er alla veganna farinn að horfa á Spiderman 3!! 

Smá slúður í lokinn:

Hlynur Hafliðason: Þekkir víst ófríðan ítalskan gaur sem er geggjað gaman að djamma með, hann situr víst bara geggjað rólegur, drekkur bjór og síðan bara allt í einu fer hann með dömu heim!! Þessi gaur er víst mikill meistari

Grimmi D: Eini maðurinn sem náði að draga sverðið Excalibur upp úr steini af fjölda manns! Mun nýtast honum vel í alls konar baráttu við ýmis tilefni.

Gunni Þór: Mætti niður á Alþingi alveg brjálaður yfir því að íslenska gatnakerfið bjóði ekki upp á það að keyra og sofa bæði í einu líkt og hann er búinn að vera að reyna að læra af honum Brandon Lang!! Hann segir að það sé ómögulegt að know your road hérna í Reykjavíkinni 

Guðjón Hrafn: Er hættur við Kvikmyndaskólann í bili og stefnir á career í að moka göturnar og er núna að safna fyrir gröfu!! " Þegar allt kemur til alls þá er hægt að leysa öll mál með sandi " , sagði Guðjón þegar hann var spurður út í ákvörðun sína.

Orri: Bíður víst spenntur eftir því hvað scoutinn á fantasy segir og liggur á refresh takkanum mun einnig taka tillit til tipsanna sem að Grimmi D er farinn að gefa út fyrir hverja umferð. " Stundum verður maður einfaldlega að tipsa sig í gang til að ná árangri" hafði Orri um málið að segja.

Fribbi: Eftir að hafa horft aðeins of mikið á Bubba byggir þá fékk Fribbi þá snilldar hugmynd að gerast Fribbi byggir!! Eins og staðan er í dag þá er hann búinn að koma nálægt öllum viðgerðum á húsnæðum á stór höfuðborgarsvæðinu. 
Setningin " Fribbi byggir er miklu betri heldur en Bubbi byggir! " er brot af því besta úr löngu samtali við drenginn sem einkenndist af mestu leyti af því að Bubbi byggir væri loks búinn að hitta ofjarl sinn.

Kongó: Eftir að hafa sannað sig með skrifum á blog.central.is/byssurnar er hann kominn í samstarf við forlagið um útgáfu á bókinni Lífið í kjallaranum. Sem er hvernig dóttir Jósef Fritzl leit á dvöl sína í kjallaranum, ekki er allt sem sýnist í þessari myndrænu frásögn!!!!! 

p.s. Nenni ekki að fara yfir textann út af stafsetningarvillum eins og vanalega.





 









» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2012 16:18:46 / Grænmetið

Lokun blog.central, contraband, íslenska landsliðið og háskólahöstlið!

Blog.central.is/byssurnar að fara að loka, hvað rugl er það!!! Blog.central ætti nú að halda síðunni opinni bara út af þessari einu síðu, þvílíka bullið. En blog.central.is/byssurnar mun alltaf eiga sér mjög sérstakan stað í hjarta mínu og strákanna. Hef eytt svo mörgum stundum í blogg hérna að það ætti eiginlega að verðlauna mig!! Hefur samt bara reynst mér vel og mér finnst vera virkilega gefandi fyrir sjálfan mig að festa texta á blað.

Eins og áður fyrr þá eru nokkur mál á dagskrá hjá mér:

Hvað er að frétta eiginlega með þennan snjó!! Ég nenni nú ekki að dvelja mikið við hann enda eru 90% af statusum á fb myndir af einhverju snjóbrjálæði!! Þessi gaur segir sko réttu setninguna um hvað mér finnst um þetta snjó brjálæði (http://www.youtube.com/watch?v=mr0CRLqx5xs)!! Ég er alveg undrandi á þessu og þetta er alveg nett pirrandi, þetta er líka að hindra fit season enda nenni ég ekki að vera að klofa yfir einhverja skafla til að komast í ræktina. Vona að þetta ástand fari að leysast enda styttist í sólina og líkt og Ray Rice segir:
"It always good when the sun's out to have your guns out"

Fór á Contraband sem er ameríska útgáfan á Reykjavík Rotterdam og skartar hinum massaða Mark Wahlberg. Hvernig fannst mér hún? Sæmileg, nánast alveg eins og Reykjavík Rotterdam þannig að maður vissi nú alveg hvað væri að fara gerast en ég hafði nú alveg gaman að henni og þá sérstaklega kannski bara út af því að Baltasar gerði hana. Það er alltaf jákvætt þegar að Íslendingar meika það út í Útlöndum. Það voru þó tvö atriði sem ég grenjaði úr hlátri yfir og voru þau leikur pabba Mark Wahlbergs í myndinni en hann er örruglega versti leikari allra tíma fyrir utan Tommy Wiseu(http://www.youtube.com/watch?v=Plz-bhcHryc) sem er btw fagmaður og þetta atriði þegar að Mark Wahlberg fer og hittir hann, það meikar ekkert sens!! Síðan þegar að gaurarnir sem eru að ræna peningabíllinn ákveða að teipa á sig einhvers konar grímur!!!!! Fack hvað það var sturlað og ógeðslega fyndið, hverjum dettur eiginlega svoliðis í hug? Það er alla veganna ekki hægt að hlæja ekki þegar maður sér þessa gaura með teipið utan um andlitið!!

Hvað var málið með handboltann og gengi okkar á EM? Jú Bjöggi bloggaði ekki nógu oft og kenni ég því um!! Hann bloggaði einu sinni og við tókum Ungverja í bakaríið, tilviljun? Kannski, kannski ekki! You do the math(sagt með röddu Brandon Lang). Fyrir næsta mót þá vill ég því að Bjöggi bloggi fyrir alla leiki!!!

Ég var staddur á háskólatorgi í vikunni ásamt Grimma D og urðum við vitni af einhverri danssýningu á vegum háskóladansins og voru þau að leita af fleiri viðskiptavinum! Það var alveg nett kjánalegt og ég hefði aldrei komið upp fyrir framan alla og dansað líkt og þau gerðu. Það er líka mikill misskilningur að stelpurnar sem eru að kenna dans séu í góðu formi og í snípsíðum kjól sem fer upp þegar að daman tekur snúning!! Þegar ég fylgdist samt með þessu þá fór ég að hugsa: " Hvaða lið fer eiginlega í þetta?" Og eftir smá getgátur þá rann það upp fyrir mér!!! 70% af því liði sem fer í þennan háskóladans er fólk sem þráir einhvers konar snertingu, ég geng ekki svo langt að bomba því fram að 70% af liðinu þarna sé að reyna að fá sér að ríða en þau eru einmanna og eru að reyna að leita sér að einhverju. Hin 30% eru örruglega pör sem vilja vera með eitthvað show off í einhverjum boðum!!! Fólk sem leitar í félagsskap af þessu tagi vil því ég meina að sé svolítið mikið að leita sér af félagsskap við hitt kynið enda er liðið þarna oft ekki upp á marga fiska útlitslega séð og ekki að skora mikið dags daglega og ég er þá ekki bara að meina þennan háskóladans, ég er líka að meina félagsskap eins og skáta, björgunarsveitina, leshópa, spilaklúbbar o.fl. En líkur sækir líkan heim og það er bara gott um það að segja en það er spurning hvort að það sé ekki hægt að breyta nafninu á þessum félagsskap eins og t.d. í háskólahöstlið!! Myndu fá fleiri viðskiptavini get ég sko lofað :)

p.s. http://www.youtube.com/watch?v=3erkxaBo3L0 , fack hvað þetta er fyndið!!!!!!!

pís out!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2012 13:18:47 / Grænmetið

Hvatning og rétt hugarfar!

Þegar ég fer í eitthvað átak, sama hvort að það sé líkamlegt eða námslegt þá þarf ég að sæka mig upp!! Greinar, video, bíómyndir og grafa upp allt það sem ég er stoltur af og segja við sjálfan mig: „Ef ég komst í gegnum þetta þá verður þetta ógeðslega auðvelt“
Hvatning er nauðsynleg fyrir mann hún veitir mannri innri styrk til að takast á við eitthvað sem er erfitt, óspennandi, leiðinlegt eða hvað sem hluturinn er sem maður þarf að glíma við. Á seinasta hluta 2011 missti ég svolítið taktinn hvað það varðar, var annars hugar og gleymdi mér!! Hætti að leita í einhvers konar hvatningu og fór niður á mjög lágt plan, dróst ofan í einhverja óhamingju og tók inn á mig vandamál annarra sem og mín vandamál sem voru að mestu leyti hlutir sem ég gat ekki stjórnað. Endalaust óhamingjutal, uppgjöf, öfund og sjálfsvorkunn einkenndi líf mitt. Hvatning er mikilvæg og ef maður er að eiga slæman dag eða  vikur þá verður maður bara að bíta á jaxlinn og gera betur næsta dag og næstu vikurnar!! Það góða með lífið er það að maður fær í flestum tilfellum annan séns, ef þú gerðir eitthvað rangt í fyrsta skipti þá færðu mjög líklega annan séns til að gera sama hlut rétt einhvern tímann seinna!! Þegar allt kemur til alls þá getur maður bara gert sitt besta. Maður getur bara verið maður sjálfur og allir hafa jú sínar takmarkanir en með réttu viðhorfi þá á maður að geta komist í gegnum hvað flest ef maður reynir sitt besta. Þetta á við nánast alla hluti í lífinu, maður þarf samt að minna sig á það enda fljótt að gleymast og maður er jú alltaf svekktur þegar að hlutir ganga ekki upp fyrir mann. Það er ömurlegt að falla í prófi,ömurlegt að hlaupa minna í dag heldur en í gær, glatað þegar að þyngdirnar manns hrynja niður í ræktinni, leiðinlegt þegar að maður missir vinnuna sína o.fl. En það eru endurtektarpróf, gangstéttirnar hverfa ekki, lóðin verða á sama stað á morgun og það eru fleiri stöður sem standa til boða. Ég er farinn að tileinka mér þessa hugsun eftir 2011 í stað þess að leggjast í einhverja sjálfsvorkunn sem ég gerði of mikið af þá veit ég að ég fæ önnur tækifæri! Fer í önnur atvinnuviðtöl, ég eignast aðra kærustu, næ betri árangri í ræktinni og svo margt fleira. Málið er bara að reyna að nýta tímann sem allra best, vita hvað maður vill og að reyna sitt besta. Tíminn er það allra dýrmætasta í lífinu enda getur maður ekki fengið hann tilbaka og maður getur ekki breytt því hvernig maður eyddi honum. Ég mun eyða tíma mínum rétt framvegis, mun eyða honum í hluti sem veita mér ánægju og nýtast mér. Sem ég geri nú orðið, ég læri, hreyfi mig og rækta samband við manneskjur sem ég næ góðri tengingu við og er hrifinn af. Er ég alveg rosalega bjartsýnn með framhaldið og mér gengur vel en ég þarf alveg að gíra mig upp, þarf hvatningu og ég reyni að hvetja sjálfan mig áfram á hverjum einasta morgni, eftirmiðdegi og kvöldi.
Fjölskyldan mín og vinir skipta mig samt LANGMESTU máli og ég læri langmest af liðinu í kringum mig, fólkið mitt er mín mesta hvatning, fólk brýnir fólk eins og járn brýnir járn er sagt í biblíunni. Fólkið í kringum mig brýnir mig og gerir mig að betri strák!! Ástin og stuðningurinn sem ég hef fengið frá mömmu, pabba og systkinum mínum mótar mig, samræðurnar sem ég á við Grím veita mér margt,hugmyndafræði Ingvars um að hann geti allt sem hann leggur sér fyrir hendur veitir mér innblástur, góðmennska Hlyns og fjölskyldu hans í garð mín er eitthvað sem ég vill veita öðrum, andlegur styrkur Kongós er eitthvað sem ég vill tileinka mér, Helgi Ólafur og einlægni hans er eitthvað sem mér þykir rosalega vænt um, Guðjón Hrafn og okkar love/hate samband er sérstakt fyrir mér, EMB og fallegi strákurinn sem býr inn í honum snertir mig, Gunni&Orri og það að við gírum upp harðleika er mjög karlmannslegt og hollt fyrir mig, hjálpsemi Friðjóns lætur mig enn frekar vilja vera betri vinur og hjálpa öðrum.
Fólkið mitt gerir mig hamingjusaman, skólinn og fit season skiptir mig miklu minna máli en þó finnst mér ofboðslega gott að vera duglegur þar og ná árangri.Gott að nýta tímann sinn vel og nýta hæfileika sína!! Frá núna í vetur hef ég alveg náð ágætis árangri í ofangreindum hlutum, farinn að læra vel á daginn og ég gíra mig svo upp að ég finn mig knúinn til þess að fara í ræktina. 2011 var ekki voðalega gott lærdómsár né formlega séð, var að rokka rosalega þyngdarlega séð og frá 71-75 kíló. Var það út af því að það komu kannski vikur og vikur þar sem ég át ekki út af hlutum sem voru að angra mig. Í dag hef ég mikla matarlyst og sé ég rosalega mun á mér og steig ég á vigtina áðan og var 80.5kíló sem ég hef bætt á mig frá miðjum nóvember, 5.5 kíló á 2 mánuðum er alveg ágætis árangur og ég er búinn að vera duglegur að hlaupa og lyfta þannig að þetta er að einhverju leyti vöðvar! Fack hvað ég lít miklu betur út líka, fit season/bulk season er að gera mér gott þá sérstaklega andlega!!!


Ég eyddi endalausum tíma í fyrra í að hugsa af hverju ég væri ekki að finna þessa hamingju sem ég átti skilið og kenndi mörgum um!! Í stað þess bara að reyna mitt besta, meira getur maður ekki gert eeeeeeeeennnnnnnnn málið er bara að manni líður vel þegar maður reynir sitt besta og ef eitthvað gengur ekki uppþá harkar maður það bara af sér og það er alveg auðvelt ef maður er með þá staðreynd á bakvið eyrað að maður fær mjög líklega annað tækifæri til að leiðrétta sín fyrri mistök og ná árangri í starfi og leik.  
Ég er ótrúlega sáttur með að ég skuli vera farinn að reyna mitt besta af því að manni líður vel þegar maður fer að sofa á kvöldin vitandi það að maður gerði sitt besta og bætti sig yfir daginn sem mannvera og námsmaður. Næsta skref hjá mér er að kaupa mér súperman bol, manni líður extra vel ef maður er klæddur í súpermanbol!! Manni líður eins og ekkert geti stöðvað mann skv. Maurice Jones-Drew!!

“When I was growing up, I had that story (The Little Engine That Could), saying‘I think I can, I think I can.’ For the longest time, when times were tough, I would say ‘I think I can.’ Once I got older, I realized that when you ‘think,’you leave doubt. When you say ‘I believe,’ there’s no doubt. For me, I’m a believer in what I’m doing.” – Patrick Willis

Fack hvað P. Willis veitir mér margt!! Þegar allt kemur til alls þá snýst þetta svolítið mikið um að hafa trú á sjálfum sér það gerir margt fyrir mann og að reyna. Þá getur maður alltaf litið tilbaka og sagt við sjálfan sig að maður reyndi þó og að næst muni hluturinn ganga upp fyrir mann. Ég er líka hættur þvíað benda á aðra og kenna öðrum um mín vandamál þó svo að margir hafa ekkert verið að gera líf mitt auðveldara þá má maður ekki gera það. Maður verður að benda á sjálfan sig enda er það eina sem maður getur breytt!! Maður getur ekki breytt fólki, vandamálum þeirra, hegðun þeirra, líkamlegum kvillum og innrætti fólks en maður getur samt breytt sjálfum sér og hvernig maður tekst á við alla þessa hluti!!! 

Annars styttist í helgina og ég held að hún verði alveg yndisleg, margt spennandi að gerast í íþróttarheiminum og ég get farið inn í helgina búinn að vera duglegur í skólanum sem er nýtt fyrir mér :) Það er svo mikill súper sunday líka á sunnudaginn og ég er að fara éta svo mikið nammi , FACK bulk season!!! En ég vona að þið getið tekið eitthvað með ykkur úr færslu þessari enda farinn að reyna að skrifa um hluti sem bæta sjálfan mig og vonandi að ég geti verið einhvers konar ljós fyrir fólk sem þarf að takast á við eitthvað sambærilegt. 

p.s. Takk Darri fyrir að pósta öllum þessum video-um á mig það er mikil hvatning í þér og hvernig þú ert :) Er samt búinn að horfa á flest video-in enda hef ég þurft á þessu að halda seinustu vikurnar!! Við fýlum greinilega það sama, great minds think alike.

kv. Gunni Freyr
     


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2012 20:15:27 / Grænmetið

L.A confidential, tékklistar, NFL, fit season o.fl!

Ég ligg núna upp í rúmi hérna heima hjá algerlega búinn á því!! Skil ekki hvernig maður nennir að leggja á sig þessa þynnku endalaust hún er einfaldlega ekki góð. Ég verð samt að gefa sjálfum mér kredit enda hugsaði ég með mér þegar ég var staddur í afmælinu hjá Kristjáni frænda mínum að nú væri þetta komið gott og rölti ég einfaldlega bara heim til mín í stað þess að halda á vit ævintýranna í miðbænum :) Þroskamerki hjá Gunnari Frey!! Ekki oft sem ég hef ákveðið að sleppa bænum og halda heim á leið en vonandi að maður fari að gera meira af því. Ég er mjög ánægður með þann árangur sem ég hef náð með sjálfan mig á undanförnum árum, ég er alltaf að læra meira inn á lífið og sjálfan mig. Get sagt af öllu mínu hjarta að ég hef bætt mig sem mannvera. Farinn að sýna miklu meiri væntumþykju og ég tek tillit til tilfinningar annarra, mér finnst hvorki gott né skemmtilegt að hrista upp í liði. Það er ekki gott þegar að samviskan öskrar á mann: "hvað varstu eiginlega að pæla!!" Svipað og að dröslast um með eitthvað akkeri á bakinu og er ég rosalega feginn að vera laus við öll þessi akkeri sem ég átti það til að vera bera í gamla dag. Það er nefnilega ekki góð tilfinning að særa lið og eitthvað sem enginn á skilið, mannveran er ekki einhver ómerkilegur hlutur sem maður á að nota til að uppfylla eiginn þarfir!!
Það er líka svo gott að sýna og láta einhvern vita að manni þykir vænt um hann og er ég feginn að ég skuli vera farinn að gera meira af því, maður nefnilega veit aldrei hvenær maður fer. Maður gæti þess vegna dáið á morgun og vill ég persónlega sýna þeim sem mér þykir vænt um hvað allra mestu hlýju þangað til að ég dey sem verður vonandi eftir mörg mörg ár. Ég hræðist samt svo mikið dauðann, fack hvað ég hræðist hann ógeðslega mikið!!! 

Þó svo að ég hafi bætt mig í nánast alla staði sem mannvera þá er þó eitt sérstaklega sem mig langar til að vinna í. Það er að fyrirgefa, ég á alveg rosalega erfitt með að fyrirgefa fólki sem særir mig eða gerir eitthvað á hlut vina minna. Sem er ógeðsleg hræsni af minni hálfu af því að ég vil að fólk sem ég hef hef sært geti fyrirgefið mér og þess vegna alveg fáranlegt ef ég get ekki gert það sama!! Vonandi að ég geti bætt mig hvað það varðar og ég er að reyna, er virkilega mikið að reyna að finna frið innra með mér. Les vers úr biblíunni af netinu sem snúa að fyrirgefningu og þess háttar og vonandi að það skili mér einhverju. Vil virkilega bæta mig enda ekki hollt fyrir neinn að vera reiður út í fólk. Hef eytt alltof mörgum klst í gegnum tíðina í einhvers konar gremju og reiði út í lið og það hefur bara reynst mér neikvætt. Vona að þessi djöfull minn fari nú að hverfa enda komið gott. 

Annars er ég bara mjög kátur og sáttur við hvernig fullt af hlutum eru að þróast fyrir mig þessa dagana, fit season í fullum gangi og eldmóður kominn hvað varðar að klára skólann!! Um leið og maður er farinn að fá samviskubit yfir því að fara ekki í ræktina er maður á góðri leið. I like the way i look en ég fer samt bara til þess að finna til í skrokknum, finnst ég mér vera eitthvað svo lifandi eftirá :) Fæ ekki eins mikið út úr því að hlaupa og lyfta en ég geri það samt, hata það en geri það og er kominn í ágætis rútínu hvað það varðar. Hleyp í 40 mínútur 2-3 í viku sem er mikil bæting af minni hálfu, ekki það að mér finnist erfitt að hlaupa, mér finnst það bara ekki skemmtilegt og fæ ég meira út úr átökum á skemmri tíma og fjölbreytileika. En það er gaman að vera í góðu formi og eru cardio æfingar nauðsynlegar hvað það varðar, maður veit líka aldrei í hvaða aðstæður guð getur sett mann í og hvenær það getur verið gott fyrir mann að geta sprett vel úr spori. 

En nóg um mig, það eru nokkrir hlutir sem ég hef rekist á að undanförnu sem hafa vakið hrifningu annars vegar og undrun hins vegar:

L.A. confidential: Ég, Hlynur og Grimmi eigum það til að taka videokvöld saman og tókum við eitt slíkt í vikunni þar sem við horfðum á L.A. confidential. Fack hvað þetta er góð mynd og ótrúlegt að ég hafi ekki verið búinn að sjá hana, Russel Crowe er líka svo GRJÓTHARÐUR í þessari mynd FACK!! Kim Basinger stendur líka fyrir sínu með að vera ógeðslega heit og Hlynur var alltaf að öskra hvað honum langaði til að komast inn í hana, hvað sem það þýðir!!
Tileinkaði mér líka nýja línu úr myndinni sem ég er að fara að nota á lið eða HIT THE ROAD PAL. 

Skype: Þvílíka snilldin og ég get rétt ímyndað mér hvað þetta samskipta forrit er nauðsynlegt fyrir alheiminn.

Patrick Willis: Mennsk vél og er saga hans og skoðanir í ræktinni að hjálpa mér. Hahahaha er farinn að tileinka mér æfingar sem ég sá hann vera að gera og núna þegar ég fer í ræktina þá geri ég bara það sem mér sýnist enda hefur hugmyndafræðin að taka einn vöðvahóp á dag ekki skilað mér miklu nema þá að draga úr mér vilja við að fara í ræktina. Takk þarna massaða vélin þín Patrick Willis.

NFL: Takk Hlynur og Gunni Þór fyrir að hafa kynnt mig fyrir þessari snilld!!

Stóra rúv málið: Hvað er málið með það eiginlega!! Hvað er málið með að aðilar sem eru tengdir þessu séu að koma fram og tjá sig um þetta. Rétt eins og þessi dóttir Páls og sonur hans!! Mér finnst rosalega illa af þessu máli staðið og ef að kæran leiðir ekki til ákæru þá finnst mér eins og þau ættu öll að sjá sóma sinn í að yfirgefa RÚV. Ekki það að ég viti nokkuð um þetta mál og ef að eitthvað ofbeldi átti sér stað þá á náttlega bara að dæma manninn, mér finnst hins vegar bara ekki rétt að þessu máli staðið.

Tékklistar: Hef oft verið að heyra um lista sem að fólk notar þegar það er að leita sér eftir maka, pínu brenglað eeeeeeeennnnnnnnn margir að styðjast við slíkt. Dæmi um listana eru t.d.
185-190 á hæð
• Dökkhærður
• Sterkur og sjálfstæður
• Öruggan
• Góða fjölskyldu
• ofl
Ég er ekki alveg með þessa lista á hreinu enda blessunarlega laus við þá enda fell ég bara fyrir þeim sem ég fell, engin ákveðinn uppskrift eða viðmið við fyrri stelpur. En margir eru með uppskrift af þessu tagi, afhverju veit ég ekki en lið er búið að mála einhverja fullkomna glansmynd um einhvern sem myndi henta best fyrir mann í samband!! Ég get ekki ímyndað mér hvað það er í fari stelpu sem yrði fullkomið fyrir mig annað heldur en að hún sé bara góð við mig, láti mér líða vel og taki mér eins og ég er. En lið sem er með svona lista held ég að sé að reyna uppfylla lack of something hjá sjálfum sér, óöruggi fyllt með öryggi o.sfrv. Til að maður verði samt virkilega hamingjusamur þá getur maður ekki verið að styðjast við svona lista, maður verður að láta hjartað ráða ferðum enda þó svo að allt standist á listanum þá verður maður að bera tilfinningar til mannverunnar. Ekki bara nóg að málverkið er glansandi flott það verður víst að hafa einhverja þýðingu fyrir mann.

THE END!

 

 

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 01:17:22 / Grænmetið

Noname!

Fit season er í svo bullandi gangi, fack!!! Ekki bara það að hreyfingin geri mikið fyrir mig heldur en að vakna til þess að fá sér morgunmat og ekki bara hvaða morgunmat sem er heldur að mixa sér vöðvafæði lætur mér persónulega líða virkilega vel. Að steikja sér ommilettu með kotasælu og éta skyr með því er ofboðslega hart og er það næsta sem ég kemst Rocky í raunveruleikanum!! Er reyndar að éta svo mikið núna að ég er alveg smá smeykur um að fit season gæti breyst í fat season en maður verður víst bara að vona það besta!! Get ekki beðið eftir að komast á sama stað og ég var í haust eða þegar ég var að upphýfingar með þyngdarbelti, fack hvað maður var orðinn harður eeeeeeeeeeennnnnnnnnn it ain't fit season any more og smá tími í að maður nái sama stalli. Ég er líka mjög sáttur með að þessi jólaboð skuli vera búinn enda nýtti ég þau villt og galið í áfengisneyslu enda ekki borgunarmaður fyrir áfengi í ríkinu, erfitt að finna sig knúinn til þess að standa vaktina á b5!! Áfengi og fit season fer líka ekki vel saman. Er alla veganna virkilega sáttur að ég skuli vera á leiðina í hard running með henni móður minni á morgun í staðinn fyrir að liggja eins og einhver AUMINGI ógeðslega þunnur heima!! Hahahahahahaha litli bróðir minn er samt svo klikkaður, alltaf þegar ég fer í einhvers konar átak þá eflist kallinn, þegar ég var búinn að tala um fit season nokkra daga í röð þá fer Jóhannes bróðir minn bara út í búð og kaupir sér endalaust af einhverri prótínríkri fæðu og ávöxtum og má búast við að hann sé as we speak að googla einhver æfingaprógröm. Gott að vita ég hafi svona jákvæð áhrif á kallinn, ég vill síðan meina að það sé mér að þakka að hann geti tekið muscle up sem er btw ógeðslega karlmannslegt!!

Fit season er gott fyrir hvern sem er og vill ég að vinir mínir verði duglegir að hreyfa sig á nýju ári enda gefandi og það er gaman að vera í góðu formi!! Ég var t.d. ekki hrifinn þegar að ég kíkti í Múlann í vikunni og varð vitni af að Fribbi var að éta pizzu og drekka bjór rétt fyrir miðnætti, mér finnst alla veganna ekkert eðlilegt við það. Grimmi D var nú með ágætis sögu um mann sem gerði nú bara það sem honum sýndist matar og drykkjalega séð og eyðilagði sá maður á sér ristillinn 26 ára gamall og er með stómapoka í dag. Það eru grimm örlög og nokkuð ljóst að sá maður er lítið að höstla stelpur á b5 eða vegó, gæti mögulega náð sér í einhver SKRÍMSLI í neðri bænum en stómapoki er ekki besta pickup línan í bransanum mögulega sú versta fyrir utan: "Ég er með AIDS"!! 
Guðjón var líka að nefna það að hann hafi passað í jakkafötin sín fyrir jól en að þau hafi nú verið orðinn of þröng á gamlárskvöld, er ég ekki hrifinn af því heldur!!! Hahahahahaha það er alveg frekar bad eeeeeeeennnnnnnnn ég reikna fastlega með því að kallinn ríði þessi extra kíló af sér enda kominn í samband og óska ég kærustunni hans innilega til hamingju enda rosalega heppinn stelpa. Guðjón er nefnilega ótrúlega góður og fallegur drengur, ég þekki hans eðli og dekrar hann vel við stelpuna. Vonandi að hún sjái samt hvað þarf að gera og láti Guðjón hafa fyrir því í svefnherberginu enda vill ég alls ekki að ég þurfi að sjá hann Bacon boy aftur!!.
Grimmi D er hins vegar að standa sig vel og er að borða hollt í Grundarlandinu ekki þetta bölvaða pasta sem hann eldar sér þegar hann er einn!! Það var nefnilega virkilega slæmt þegar að drengurinn var svipað þungur og ég og töluvert lægri, aldrei aftur Grimmi og þú getur tekið þetta pasta þitt og þú getur RUN IT DOWN THE ROAD!! Samt smá hætta á að Rauða lífshættan gefi sig og hann komist ekki í mat til mömmu og þá BAAAAAAMMMMMM kallinn orðinn feitur aftur.Þessir þrír hef ég mestar áhyggjur af hinir eru í fínum málum og eru að hreyfa sig reglulega.

En fyrst að ég var að nefna það að Gaui var að detta í samband þá kem ég að máli númer 2. í þessari færslu. Hvað er málið með öll þessi sambönd sem að fólk var að byrja í rétt fyrir jól og allar þessar trúlofanir, maður mátti varla refresha á fb. þá var allur skjárinn hjá manni uppfullur af einhverjum hjörtum og öðru slíku!! ÆÆÆiiiiiiiiiiiiiii en fallegt að opinbera eitthvað slíkt á jólunum, ég fæ alveg tár í augun þegar ég hugsa til slíks..............................NAT!!! Alveg ferlega hallærislegt finnst mér, þegar ég ætla mér að opinbera eitthvað samband eða biðja einhverjar dömu þá mun ég sko ekki bíða eftir t.d. aðfangadegi eða rétt fyrir jólin. Mun bara gera það þegar mér langar til að gera það mun ekki vera nota jólin eins og einhverja ódýra hóru til þess að kreista út einhverja extra rómantíska dropa. Gaui btw opinberaði ekkert sitt samband á jólunum, Gaui þarf ekki jólin til þess að kynda upp einhverja stemmningu og ef hann myndi ætla að biðja dömu þá myndi hann væntanlega bara gera það í miðjum kliðum en ekki um jólin enda FAGMAÐUR!!!

Annars er ég fullur tilhlökkunar fyrir þessum mánuði og þeim næstu! Hef trú á að góðir hlutir munu gerast!!, Hahahahahahahaha jákvæði Gunnar mættur á svæðið sem finnur blómalykt úr skítafýlu og heldur að það sé enginn þarna úti sem dettur í hug að særa sig :) Það er gott að vera jákvæður og bjartsýnn, líka ekkert tilefni til annars.

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2012 15:54:56 / Grænmetið

2012 og djammdrottningar!

Þar sem að fólk er að segja mér að það sé að lesa bloggin mín og er hrifið þá verð ég nú að slá til og henda inn einu áramóta bloggi.Nenni samt ekki að vera tala um einstaka atburði á liðnu ári af því að mér finnst það faggalegt og ég gerði svo sem ekkert eitthvað mjög spennandi satt að segja. Ég kem út úr árinu samt líðandi vel og sem betri einstaklingur og það er það sem skiptir öllu máli, millivegurinn skiptir ekki máli og allt það sem gekk á hjá mér er liðið.
Þarf þó að nefna einn atburð á árinu sem tengist mér persónulega ekkert en það er opnun Grillmarkaðarins, Púmbi vinur minn var að opna frábæran stað og ég er rosalega stoltur af honum!! Hann er búinn að vera svo duglegur drengurinn að orð fá ekki lýst því, gott dæmi um strák sem fékk ekkert upp í hendurnar en lagði hart að sér, var með drauma og þeir rættust. Væri hægt að gera Hollywoodmynd um kallinn án gríns, ég lít alla veganna upp til hans og ég er stoltur að hann sé vinur minn. Meira hard working gaur þekki ég ekki!!

Annars kíkti ég út í fyrradag og viti menn ljósin kviknuðu á b5!! En fack hvað það var gaman þar, hef vanalega verið í veiðihug en ég lét það eiga sig í gær! Það er líka ekkert varið í þessar píur á b5 og ég skil ekki afhverju ég hef verið að leita mér að einhverju þarna í gegnum tíðina, það er erfitt að finna rós í ruslatunnu!!! Ég hef líka bara tekið eftir því að ég hef enga þolinmæði fyrir stelpum í dag, get ekki verið í sambandi eins og staðan og mér finnst hálf tilgangslaust að vera í einhverjum veiðihug í miðbænum. Það er líka bara svo fokking leiðinlegt, það leiðinlegasta sem ég geri er að vera reyna við dömur í bænum. Líka bara allur tíminn sem hefur farið í þessa undirbúningsvinnu sem ég hef verið að leggja í þetta, fack sko. Þetta hafa líka í flestum tilfellum verið dömur sem ég hef svo sem ekkert viljað með hafa meint á eins góðan hátt og mögulegt er. Góðar stelpur og allt það bara ekki mínar týpur, ljótt af mér að hafa gert það og ég bið þessar stelpur sem lesa síðuna afsökunar. Er hættur að spila svona með tilfinningar annarra og þær stelpur sem ég mun tala við í framtíðinni eru stelpur sem ég er virkilega spenntur fyrir!! Ég gæti þó látið vaða í einhverjar djammdrottningar úr miðbænum sem ég hitti í leigubílaröðinni eða á Prontó, kynhvöt er jú víst í eðli mannanna þó svo að þessar djammdrottningar veiti mér nákvæmlega núll nema samviskubit daginn eftir. Er samt veikur fyrir þeim eða ég hef verið það, heilla mig samt minna núna heldur en þær gerðu!! Fack hvað það er örruglega erfitt að vera djammdrottning og þurfa að sýna sig við hvert tilefni í miðbæ Reykjavíkur!
Er hamingjusamur með að vera einn og þó svo að enginn haldi utan um mig þá er ég sáttur, sem er bara jákvætt og nýtt fyrir mér!! Er nefnilega örlítið ástsjúkur ég viðurkenni það sko alveg, en ég vill ekki láta hvern sem er halda utan mig. Ekki margar manneskjur sem ég treysti til þess! Eru samt nokkrar manneskjur sem myndu fá að gera það, samt flest allt gaurar eins sorglegt og það hljómar!! Djammdrottningar, þið getið því tekið þessar vodka djammkrumlur ykkar og RUN IT DOWN THE ROAD af því mér finnst þið ekki heillandi.

Í gær var annars gamlárskvöld, ég átti mjög góðar stundir með fjölskyldunni minni. Bróðir mömmu minnar og konan hans komu í mat í gær, litli frændi minn kom líka hann Jóel. Jóel bjó mín uppvaxtarár á móti mér í Aðallandinu hann er meira heldur en bara litli frændi minn, meira líkari bróðir mínum og ég elska hann.Rosalega sjarmerandi strákur sem hefur samt átt það til í gegnum tíðina að ganga heldur ótroðnar slóðir, núna vill ég samt að aginn komi sem mun gerast enda er kallinn að fara í herinn. Ég hlakka til að æfa með kallinum á næstu dögum enda þarf hann að ná þolprófi og þarf að hreyfa sig til að ná því. Hef engar áhyggjur samt af Jóeli af því aðhann er með risastórt hjarta og hvernig sem fer þá er ég stoltur af honum, hann hefur bætt sig mikið sem manneskja og það er það sem skiptir máli í lífinu!!
ÆÆÆÆIIIIIIIIII djammið var í lagi í gær ekki meira heldur en það, var bara mölvaður as usual og var að sjá um skreytingar þarna fyrir utan partýið sem við vorum í.


Nýtt ár er gengið í garð og ég er bjartsýnn og ég ætla mér að láta ljós mitt skína og hjálpa fólki í leiðinni.
„It's not who you are underneath, it's what you do that defines you.“ Er lína sem ég tek með mér inn í nýja árið, hef ekki fylgt henni áður. Hef ekki verið að sýna mitt rétta andlit en vonandi að ég geti sýnt meira af þeim sem ég á að mér að vera! Mun samt örruglega aldrei verða einhver kórdrengur enda hlutir í mínu eðli sem ég veit ekki hvort að ég muni nokkurn tíma losna við en ég ætla að reyna. Annars bíð ég öllum farsældar á komandi ári og ég vona að allir séu jafnbjartsýnir með 2012 og ég, verður gott ár andlega, líkamlega og blogglega séð!   

kær kveðja, Gunnar Freyr :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2011 17:15:25 / Grænmetið

Fit season, hóruhúsið í 101 og HR strákarnir mínir!

It ain't fit season any more. Vá hvað það er langt síðan ég hef verið að bomba í mig eggjum og kotasælu en þar sem að fit season er að fara skella á þá er nauðsynlegt að vera í réttu byggingarefnunum! Djöfulli hlakka ég til fit season, það er svo gaman að vera í góðu formi. Í lok sumars hljóp ég 5 kílómetra á 21 mín og var alveg frekar ánægður með sjálfan mig sérstaklega þar sem ég var ekkert að hlaupa neitt rosalega mikið á seinasta ári. En ætla ég ekki að vera tala neitt meira um fit season þar sem ég er í rauninni ekki með nein önnur markmið heldur en að bæta mig formlega séð og bæta á mig nokkrum kílóum af kjöti.

En þar sem ég hef verið að láta sjá mig í miðbænum þá verð ég eiginlega að tala aðeins um hann! Eins og ég hef svo ótrúlega oft sagt þá er miðbærinn ekki heillandi staður, fullt af liði saman komið með mismunandi þrár og væntingar!!Halda framhjá, reyna hitta á einhverja stelpu/strák, höstla, lenda í böggi eða slagsmálum á meðan mjög fáir fara til þess að geta eytt stund með vinum og félögum. Lang flestir fara niður í bæ til þess að höstla ég get sko alveg fullyrt það enda finnst mér miðbærinn vera að mörgu leyti risastórt hóruhús!! Maður getur ekki farið inn á skemmtistað í Reykjavík án þess að rekast á einhvern sem maður á einhverja sögu með úr miðbænum, það er sorgleg, sorgleg staðreynd og segir ótrúlega margt um þessa djamm menningu sem er hérna á Íslandi!! Það kippir sér enginn upp við það að fara heim með einhverri manneskju sem maður var að hitta í fyrsta skipti á ævi sinni kannski í leigubílaröðinni klukkan 6 um morgunin. Að vera að sofa hjá einhverri manneskju sem maður þekkir ekki neitt og hefur aldrei séð áður finnst mér eiginlega bara nákvæmlega alveg jafn slæmt og kaupa sér vændiskonu, maður kannski borgar henni ekki einhvern pening en maður borgar kannski leigubílinn og drykki ofan í viðkomandi bara til þess eins að geta sofið hjá manneskjunni. Það er lítill rómantískur blær yfir þessum blessaða miðbæ okkar og ekki skrýtið að það sé 3 vikna biðtími hjá húð og kynsjúkdómalækni, úfffffffffffff ekki láta mig síðan byrja á að tala um þá stofnun! Ég er ekki fastagestur, alls, alls ekki en seinast þegar ég fór þangað sá ég án gríns svona 15-16 ára stelpu vera þar. Mig langaði til að spyrja hana hvort hún hafi fengið eitthvað sem hún losnaði ekki við frá dúkkunum sínum!!! Síðan sá ég 70 ára kall sem var svo djammaður fack sko, nýbúinn úr ljósatíma með skyrtuna sína hneppta niður á nafla, hahahahahaha það er samt reyndar svo mikil fagmennska þannig að ég tek tilbaka að mér finnist það vera eitthvað óeðlilegt. En svona öllu gríni slepptu þá er lauslæti Íslendinga ógeðslegt síðan er maður að heyra í gaurum sem eru að væla yfir einhverri eyðimerkurgöngu pffffffffffffffffffffff tékkiði á miðbænum! Að finna ekki píku á hóruhúsi er ekki eitthvað sem maður á að vera tala um, það eru allir eða langflestir að leita af því sama í miðbænum svo það er frekar skrýtið að einhverrir skulu vera út undan! Alla veganna til að sigta síðan út liðið semer ekki að leita sér af höstli þá getur maður einfaldlega beðið þangað til að ljósin kvikna á staðnum, það er enginn heilvita maður inn á einhverjum skemmtistað þegar að ljósin kvikna nema hann sé að leita að einhverju, þeir sem eru enn til staðar eru þeir sem eru desperate og ástsjúkir. Þegar að ljósin kvikna er því liðið eftir sem er enn að leita, því ætti pörunarferlið að ganga auðveldlega fyrir sig. Ég er  að spá í að vera svona match maker inn á B5 næst þegar ég fer þangað inn, þegar að ljósin kvikna þá stekk ég upp á dj-borðið og byrja bara að para lið heim saman, það yrðu örruglega bara allir sáttir með það enda innst inni það sem lið er að leita af. Match maker á B5 væri líka geggjaður titill fyrir job description á facebook. Já ég er að spá í að kýla bara á það þó svo að partur af sálu minnideyi þegar að ljósin kvikna þarna inni!! 

En annars vill ég þakka verkfræðistrákunum fyrir frábært kvöld í gær, ég er svo þakklátur fyrir að hafa kynnst ykkur öllum og eytt yndislegum samverustundum með ykkur upp í HR. Vá hvað við áttum góða tíma saman og lentum í miklum ævintýrum sem munu fylgja mér alla ævi! Árshátíðarmyndböndin, VBS herbergið,fótboltinn, borðtennisinn, fússballið, vísindaferðirnar, kringlan. Æææææiiiiiiiiii þið eruð yndislegir strákar mínir og forréttindi að hafa fengið að kynnast ykkur öllum og þarf ég að hafa meira samband við ykkur.  Hér undir lokin eru minningar sem eru mér alveg ógleymanlegar úr HR:

Bauni, þýski klámmyndaleikarinn, kók ískapurinn hans Ómars, boðsmiðar EMB á pursuit of happiness, spenin á mömmunni, sveiflan frá Grindó, Bauni og þegar hann reyndi að smygla áfenginu inn á Ölver og lögfræði Ómar mætti á svæðið, árshátíðin í bláa lóninu, Darri og Larri, reykingar Gilla í rútunni, stóri aðgerðargreiningarkóðinn hjá Ingvari, Gilla og Svabba, mongólinn, Viktor Blær, grímuballið, rass.is, Ravi og öll hans afrek, Hlynur og Eyjólfur, sinus, Binni bílstjóri, mágkona Bjögga, að vera buxnalaus og að við vorum aðalmennirnir þarna sem gerðum bara það sem við vildum!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.12.2011 06:01:39 / Grænmetið

Árið í heild sinni!

2011 er að líða undir lok, ég get samt ekki sagt að árið hafi staðið undir væntingum! Þó lærði ég heilmargt sem situr eftir og er ég reynslunni ríkari eftir 2011.  

Árið byrjaði þó ótrúlega vel, ég varð ástfanginn og fann fyrir tilfinningum sem ég hafði ekki fundið fyrir rosalega lengi eða kannski nokkurn tímann áður. Hélt ég virkilega að þetta yrði stelpan sem ég myndi enda með en gerir maður það ekki alltaf!! Átti ég góða tíma með þessari stelpu á meðan allt lék í lyndi og vorum við ofboðslega góð við hvort annað og er ég þakklátur fyrir þennan tíma. Get ég með fullri samvisku sagt að ég hafi verið virkilega hamingjusamur á þessum tímapunkti á árinu þó svo að ég muni ekki alveg eftir hvernig tilfinning var þá man ég að hún var góð, leiðinlegt að þessi hamingja hafi ekki náð að teygja sig lengra en maður getur ekki gert kröfu á að komast í gegnum lífið þrautarlaust og án nokkurra erfiðleika, helmingurinn af árinu var mér því mjög erfiður og þar voru tímar þar sem ég átti virkilega erfitt. Svefnlausar nætur, kvíði og vonleysi þar sem ég missti trúnna á sjálfum mér. Það er ekkert grín að horfa í spegillinn heima hjá sér og sjá ekki sjálfan sig í réttu ljósi það er eitthvað sem ég vonandi þarf aldrei að lenda í aftur. En sú tilfinning hvarf sem betur fer þegar á leið árið og fór ég að finna meira fyrir káta drengnum sem býr í brjósti mér þó ég eigi alveg aðeins í land ennþá. Ég týndi káta drengnum og lokaði mig því miður af,hvarf í rauninni, hringdi ekki í vini mína né fór mikið út einfaldlega af því að ég vildi ekki sýna mig án káta drengsins. Það er breytt en hefði lagast miklu mun fyrr ef ég hefði verið meiri maður, bitið á jaxlinn og sýnt fólki mig særðan. Ekki gott að loka sig af þegar myrkrið umlykur mann en ég á þó yndislega foreldra sem hlúðu að mér og hjálpuðu mér. Ég hafði aldrei leitað til þeirra með neitt, aldrei rætt við þau um tilfinningar, stelpumál eða neitt. Geri það í dag og ég hleypi þeim nær tilfinningum mínum heldur en ég gerði sem hefur hjálpað mér gríðarlega enda var þetta John MCclane dæmi ekki að virka fyrir mig.
Er ég því sáttur með hvernig fullt af hlutum þróuðust fyrir mig á árinu og mun ég taka þá með mér í framtíðina. Þeir hlutir sem ég er ósáttur með þarf ég því miður að skilja eftir í ösku, þar eru hlutir sem ég vildi að hefðu farið betur og ég gæti haft rúm fyrir en get það ekki þar sem þeir hafa misst þýðingu fyrir mér. Það er sárt að þurfa að ýta á delete takkann á minningar, fólk og eyða einhverju sem var gott og fallegt en stundum neyðist maður til þess.   

 
Ég hef alla veganna lært heilmikið um sjálfan mig og mín takmörk á árinu sem er að líða, ég mun aldrei getað staðið hjá og horft á fólk sem mér þykir vænt um líða illa án þess að fá að gera nokkurn skapaðan hlut. Mun aldrei láta sitja mig í svoleiðis aðstæður aftur enda ekki boðlegt. Samúð mín og heiðarleiki er eitthvað sem að annað fólk deilir ekki og ég get ekki gert kröfu á að fólk sýni mér eitthvað sambærilegt þó svo að ég reikni með að þeir sem þyki vænt um mig geri slíkt. Þeir sem hafa sært mig á árinu þurfa því að eiga það við sjálfan sig vitandi það að ég hefði ekki gert slíkt hið sama.
Gjörðir segja meira heldur en nokkur orð og ég verð að hlusta betur á hausinn á mér í staðinn fyrir hjartað, tilfinningar mínar geta nefnilega reynst mér jafnilla og vel.  
Það er allt í lagi að tala við foreldra sína um vandamál sín og áhyggjur og er það bara mjög uppbyggilegt. Ég á erfitt með að sætta mig við hluti sem ég fæ ekki breytt en ég er farinn að harka þá betur af mér. Meðal almennings þá hef ég bara sjálfan mig og ég verð að hafa meiri trú á sjálfum mér til að ná árangri í leik og starfi.

En nú er árið senn á enda og ég hlakka til framtíðarinnar, ég mun byrja nýtt ár án áhyggja með hreinan skjöld og með miklar væntingar. Ég ætla mér að gera fjölskyldu mína og vini stolta, ætla að vera til staðar fyrir fólkið í lífi mínu. Ætla að hætta að sýnast vera verri heldur en ég er, verð vonandi hlýrri og meira líkur þeim sem ég á að mér að vera. Ætla að vera duglegur og klára þetta litla sem ég á eftir af námi mínu sem allra fyrst. Mig langar síðan til að verða ástfanginn aftur, það er svo gott að vera ástfanginn en ég á alveg enn smá í land með sjálfan mig og þarf það því eitthvað aðeins að bíða með það.Hlakka alla veganna mjög til að kynnast einhverri stelpu, gefa af mér og fá eitthvað sambærilegt tilbaka það er góð tilfinning. Third time is the charm er líka sagt sem gerir mig extra bjartsýnan með mitt næsta samband. Mig langar til að sitja á sunny beach og horfa á sólarlagið, væri gaman ef það væri með fjölskyldumeðlimi, vinum eða kærustu en ég gæti líka bara farið einn. Langar til að standa á eiginn fótum sem ég mun gera enda við það að klára nám mitt. Ætla mér að vera duglegur að hreyfa mig, bæta á mig vöðvum jafnt sem þoli. Langar til að hlaupa alla veganna hálft maraþon eða 10 kílómetra á mjög góðum tíma í glitnismaraþoninu. Mig langar í svo ótrúlega margt en ég get ekki gert kröfu á þetta allt saman. Væri samt gaman ef ég gæti fengið sem mest af þessu uppfyllt og ég ætla mér að reyna, vill geta horft tilbaka og sagt að ég reyndi mitt besta viðað ná draumum mínum.
Undir lokinn þarf ég að þakka fólki fyrir hina ýmsu hluti:

Ég vill þakka Hlyni og fjölskyldunni í Akurgerði fyrir að vera yndisleg og fyrir það bjóða mér ávallt opnum örmum inn á það ástríka heimili. Algert safezone fyrir mig og mér líður ávallt betur eftir að hafa heimsótt þau.

Ég vill þakka bróðir pabba og frænda mínum fyrir að hafa verið svona duglegir við að gera utanlandsferð föður míns eins auðvelda fyrir hann og raun bara vitni. Þið glödduð mörg hjörtu úr Aðallandinu.

Ég vill þakka vinum mínum fyrir að taka mér eins og ég er, það að ég sé partur af frábærum hópi finnst mér vera yndislegt og ég er þakklátur fyrir það á hverjum degi.

Vill þakka fjölskyldunni minni fyrir að hafa staðið á bakvið bakið á mér, maður ræður ekki hverjir eru skyldir manni en ég er alveg rosalega heppinn með fólkið mitt og gæti ekki óskað mér neitt betra.


Margir af þeim sem eiga þessar þakkir skilið munu aldrei lesa þennan texta en ef þið þekkið einhvern sem á þakkir frá mér skilið þá megið þið endilega faðma viðkomandi og segja þeim að Gunnar Freyr sé þeim þakklátur. Er nefnilega ekki enn kominn á það stig að getað opnað mig fyrir hverjum sem er nema þá í skrifum. Það lagast samt vonandi og ég stefni á mikla og langa þakkarræðu á næsta ári.  
Ég óska öllum lesendum síðunnar síðan gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, vona að þið hafið það sem allra best og takk fyrir að nenna að lesa bloggin mín, vona að þið getið tekið eitthvað með ykkur úr þeim þó það sé ekki nema að fá örlitla innsýn inn í minn blákalda veruleika og hugsanir. Veit vel að ég hef breytt um ritstíl á liðnu ári en þessi nýi ritstíl veitir mér meira þrátt fyrir að ég hlæ minna við skrif mín. 



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2011 20:07:00 / Grænmetið

Djöfulli vorkenni ég sumum!

Ég skellti mér í kringluna áðan með Ómari frænda mínum, það er ekki frásögufærandi nema það að það er alveg ótrúlega mikið af fávitum í umferðinni. Fólk er almennt bara í ruglinu þegar að göturnar eru ekki auðar, ótrúlegt að maður verði ekki vitni af fleiri umferðaróhöppum. En það er ekki bara í umferðinni á götum borgarinnar þar sem að fólk er algerlega í ruglinu, það er líka bara í lífsumferðinni þar sem fólk virðist vera á villigötum. Ingvar vinur minn er alveg ótrúlega öflugur að sálgreina fólk, veit ekki hvort að hann sé með einhvern einstakan hæfileika eða hvort að hann sé einfaldlega svona lífsreyndur ef til vill er þetta blanda af hvoru tveggja. Kom hann með ótrúlega kenningu í sumar um grimmd mannverunnar sem ég held að það sé svolítið til í er alla veganna farinn að hallast svolítið af kenningum hans, Freud hvað!!! Ein afkenningum hans er um svokallaða mennska plástra og vonandi að ég komi þessu til skila ágætlega enda tel ég að þessi kenning komi að góðum notum fyrir fólk.

Í lífinu er lið sem glímir við hina ýmsu erfiðleika og það ná ekki allir að vinna úr sínum málum einir og óstuddir. Það eru ekki allir grjótharðir, sumir eru einfaldlega ekki nógu sterkir til að vinna úr sínum málum sem getur lýst sér í þunglyndi, tilfinningalegri brenglun o.fl. Fyrst að þeir ná ekki að vinna úr vandamálum sínum sjálfir þá er þeim eiginlega ekki viðbjargandi enda þarf maður alltaf að komast upp sjálfur. Þessir einstaklingar eru svona eins og bíll án vélar eða bíll þar sem að vélin dettur út eftir nokkra kílómetra. Þessir einstaklingar eru gallaðar vörur, umbúðirnar kannski fallegar en inn í pakkanum er rotið epli. Þetta lið er örruglega fínt þegar það hefur ekki áhrif á neina aðra en þar sem það nær ekki að skríða upp úr sinni eymdarholu af sjálfsdáðum þá þarf það einhverja uppfyllingu til að láta sér líða betur! Hvað er betra í verkið heldur en að nota mannveruna, nota hana sem plástur til að sitja á hið andlega sár sem einfaldlega nær ekki að gróa!!
Hver þekkir ekki tilfinninguna þegar maður er að kynnast einhverri stelpu/strák og allt er svo nýtt og spennandi eitthvað
J Það er ótrúlega góð og notaleg tilfinning að vera hrifinn af einhverri manneskju, fá athygli og láta hugann þvælast með mann um framtíðina. Maður gleymir daglegum áhyggjum eða getur leitt þær hjá sér. Mennski plásturinn heldur samt bara í smá stund og það þarf ekki nema smá vatnsbunu þá skolast hann í burtu, plásturinn græðir ekkert sárið sjálft og um leið og hann hverfur þá situr einstaklingurinn uppi með blákaldann raunveruleikann og sín fyrri vandamál. Þegar maður kynnist nefnilega einhverjum þá er allt rosalega spennandi í fyrstu en eftir smá tíma þá breytist þessi ótrulega hrifning og losti í byrjun yfir í væntumþykju!! Um leið og það gerist þá fara vandamálin að herja á mann aftur enda getur maður bara gleymt áhyggjum sínum í takmarkaðan tíma. Þá er sko stutt í litlu ömurlegu eymdarholuna aftur.
 Að nota mannveruna sem uppfyllingarefni til að fylla upp í manns eigin eymd úfffffffffffff ég veit ekki hvað ég á að segja hvað mér finnst um slíkt! Ég er ekki hrifinn af slíku liði enda ekkert annað heldur en rosaleg sjálfselska og bara mjög ljótt. En það er fullt af liði þarna úti sem er að gera slíkt, fullt af liði og eru viðvörunarbjöllunar oft fjöldinn allur af mökum enda fúnkerar svona lið ekkert í samböndum. Plástrarnir eru ekkert heillandi þegar að límið er farið af sem og þá höndlar enginn að vera inn í þessum fellibyl sem þessir einstaklingar láta mann ganga í gegnum og þess vegna er sambandstíminn yfirleitt mjög stuttur.
Bið ég fólk um að passa sig á þeim sem eru að leita sér af mennskum plástrum og þá kannski sérstaklega svona yfir hátíðarnar enda eru allir svo ógeðslega ástsjúkir á þessum tímum. Það er fullt af hættulegu liði þarna í umferð!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2011 04:11:42 / Grænmetið

Batman, Bane, vinirnir og hin sorglega staðreynd um mannveruna

Ég var búinn að skrifa bloggfærslu sem var einungis skrifuð til að skíta manneskju út,þetta var alveg epísk færsla, grimm og óvæginn. Ég hef aldrei verið að skíta út lið á netinu en þegar ég hamraði textanum niður á blað áðan logaði ég virkilega að innan enda fannst mér eins og viðkomandi hefði átt þessi orð mín skilin og ég væri að gera rétt. Var þó að gera mjög rangan hlut þar sem ég er betri heldur en þetta sem og svona ómerkilegt lið á einfaldlega ekki skilið að fá færslu sér til heiðurs/óheiðurs á blog.central.is/byssurnar. Blog.central.is/byssurnar er ekki notuð til að skrifa niðurdrepandi hluti um eitthvað drasl heldur mannbætandi hluti sem og ég nenni ekki að láta mig líta enn verr út heldur en ég geri nú þegar hjá lesendum síðunnar

En eins og áður fyrr þá eru nokkur mál á dagskrá hjá mér. Fyrsta mál á dagskrá er nýja Batman myndin sem kemur út í sumar, fack hvað hún lítur svakalega út!!Er ég núna búinn að horfa á trailerinn þó nokkrum sinnum og er ég alveg gríðarlega spenntur enda eru Tom Hardy og Christian Bale fáranlega svalir gaurar. Hef ég svolítið verið að reyna að feta í fótspor Bane(Hardy) undanfarið og hef ég verið að bulka mig upp, ét mikið og fer einstaka sinnum og ríf í lóðin. Árangurinn er svona í kringum 5 kíló af kjöti, líkamlegur aumingjaskapur er eitthvað sem ég vill forðast eins og heitan eldinn sem og það er einfaldlega gott að vera með einhvern forða ef maður lendir í einhverjum veikindum.

Annað mál á dagskrá er það að við strákarnir þurfum að standa betur á bakvið bakið á hvorum öðrum og ræða um erfiðleikana sem eru að hrjá okkur það er alveg deginum ljósara. Það er alls ekki óalgengt að menn glími við erfiðleika og er það bara stór partur af lífinu enda getur lífið verið virkilega erfitt og ósanngjarnt. Við eigum samt ekki að þurfa að drekka okkur fulla til að kalla á hjálp ég hef gert það og það er einfaldlega rangt. Ef maður er líka illa fyrir kallaður þá skal maður sleppa að drekka enda endar djammið ávallt með skell. Ég get alveg sagt það fyrir sjálfan mig að það eru hlutir í mínu lífi sem ég vildi sjá að væru öðruvísi en ég reyni að lifa með þeim. Á mína drauma og þeir munu rætast bara ekki alveg strax!! Ef einhverjum líður illa og vantar öxl eða einhvern til að hlusta á er ég alltaf til staðar og get ég sagt frá mínum málum og hvernig ég hef tæklað þær hindranir sem ég hef þurft að ganga í gegnum ílífinu. Get ég þó ekki hjálpað neinum öðruvísi né sagt viðkomandi hvað hann þarf að gera þar sem ég á fullt í fangi með sjálfan mig og of stutt síðan ég hef skriðið upp úr þeirri erfiðleikaholu sem ég var í. Maður getur ekki alltaf Mclane-ast í gegnum lífið og þagað bara af því að það er ekki mikið womens touch í þessum vinahóp, stundum verður maður að fá að pústa út. Menn eru líka ekki eins harðir og þeir vilja meina ég er það allaveganna ekki, þetta er bara einhver varnaskjöldur hjá mér og ég acta harðar heldur en ég er. Innst inni er ég ofboðslega viðkvæmur og brothættur Hlynur,Grímur, Gaui, Kári og Helgi geta allir kvittað undir það enda hafa þeir séð mig sleppa skildinum og þar er sko lítill harðjaxl undir. Við erum vinir strákar og vinir standa með hvorum öðrum og passa upp á hvorn annan.

Þriðja mál á dagskrá er þessi litla nærgætni í samfélaginu í dag, fólk tekur almennt rosalega lítið tillit til annarra. Fólk gefur skít í samborgara sína þó svo að það viti mæta vel að gjörðirnar eru særandi og mjög óheppilegar. Síðan réttlætir sama lið með sjálfum sér að það sé svo rosalega gott með hinum ýmsu háttum t.d.með að like-a einhverja eineltistengla, ofbeldistengla eða vinna einhverjar sjálfboðavinnur.Ég er alla veganna farinn að gefa mannskepnunni minna credit heldur en ég gerði enda er hún trekk í trekk að koma mér á óvart með alveg ótrúlegri hegðun. Fólk virðist almennt nærast á því að sjokkera mann og særa. Ég er allaveganna að lenda oftar og oftar í því og kenni ég helvítis internetinu um!! Mjög auðvelt að pósta einhverju á netið, ég ætti nú að þekkja það miðað viðætlunarverk mitt fyrr í dag en sem betur fer sá ég á eftir plássinu á síðunni!!!

p.s. Verða djúsvélarnar í áramótapartýinu?
  

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2011 13:33:39 / Grænmetið

5 dagar í night of mayhem!!

Ef ég væri veðurfréttamaður þá myndi ég gefa ú tstormviðvaranir í vikunni enda er jólahlaðborð byssanna um næstu helgi! Myndi koma fram í spá minni að lítil viðkvæm stelpu hjörtu verði brotinn og strákar munu fá það óþvegið og best væri fyrir fólk að halda sig einfaldlega innandyra! Þetta er kvöldið þar sem Ísland er ekki réttarríki í okkar augum og við tökum og gerum það sem við viljum. Ónefndir aðilar innan hópsins hafa nema segja lofað að taka meydóm um næstu helgi! Fack hvað það verður erfitt enda eru íslenskar stelpur ekki beint þekktar fyrir að spara sig fyrir giftingu.

En planið fyrir kvöldið er stórbrotið, keila, fordrykkur á grillmarkaðnum,perlan og síðan verður haldið á Gauastaði þar sem kynlíf með stelpum undir tvítugu er daglegt brauð. Gauastaðir eru dálítið líkt laginu Paradise með Coldplay og ríkinu Utópía, engar reglur nema að maður verður að fara úr skónum og hitta ofan í klósetið þegar maður pissar! Gunnlaugur Óskar verður því að taka sig saman í andlitinu og miða ofan í klósetskálina þetta kvöld heima hjá Gaua. En svo ég komi aftur af Gauastöðum þá hvíslaði lítill fugl því að mér að Guðjón sé á fullu að plasta herbergið sitt og redda dömum sem við getum verið með afnot af. Einhverjir spyrja sig kannski hvort að Guðjón geti gert það og svarið er já! Hann er maðurinn sem á flestar vinkonur á Íslandi og eru þær til í að gera allt fyrir kallinn og þá sérstaklega swinga á vini hans, hann er náttlega ekki kallaður Guðjón Ford Coppola fyrir ekki neitt þarna í kvikmyndaskólanum. Ekkert samt vera að pæla alltof mikið í útlitinu Guðjón enda veistu vel að allar stelpur eru drottningar í augum byssanna þegar þeir eru fullir!!

Þó svo að þetta sé dagurinn sem að menn líti ekki á Ísland sem réttarríki þá verð ég að benda mönnum á að hegða sér í fordrykknum á Grillmarkaðnum, saga meðlima hópsins á Grillmarkaðnum er því miður ekki góð og verður að bæta úr því. Menn verða geta haldið sig í fötunum þarna inni og verða að geta haldið ró sinni þó einhver stelpa nefni að hún sé nú ekki með sömu kynlífvenjur og maður sjálfur, sumar vilja bara hafa ljósin slökkt og það verður bara að taka tillit til þess og enginn ástæða til að æsast eitthvað um og of fólk er jú bara mismunandi!!!!!
Púmbi er jú að gera frábæra hluti með staðinn og forréttindi ein að fá að taka fordrykkinn þar, spurning hvort að hann geti samt boðið upp á sömu þjónustu og Guðjón og plastað eitthvað herbergi á staðnum!!!

Fack hvað ég hlakka til, eitt samt skil ég ekki! Ég get nú ekki ábyrgst mikið af sjálfum mér þennan dag en ég get þó alltaf ábyrgst 150+ stig í keilunni. Hef ég verið að kjöldraga menn í þau skipti sem ég hef stigið inn í keiluhöllina fyrir utan náttlega það skipti sem að Kongó prufaði karmellukúluna og breyttistí karmellukeila, fack það voru einhverjir Tebow töfrar í henni en það mun ekki koma fyrir aftur enda hefur kúlunni verið fargað. Fór ég til Mordor með karmellukúlu Kongós og ásamt hestajakkanum hans Hlyns Hafliða sem hann ákvað að klæðast um áramótin 2009 og fleygði ég þessum tveimur hlutum ofan í eldfjallið! Og til Hlyns, heyrðu ég varð bara ósýnilegur eins og þú í augum stelpnanna niður í bæ þetta kvöld og komst framhjá Sáron og auganu án þess að neinn tæki eftir mér!! Aldrei aftur Hlynur Hafliðason, never again skaltu detta í hug að púlla svona tískuslys!! Eini sénsinn á að ég tapi í keilunni er í rauninni að Kongó fari til LOL vini hans Hlyns og þeir smíði karmellukúluna eftir einhverjum göldrum eða jú að menn fari og æfi sig! Ekkert að því, nákvæmlega eins og það er ekkert að því að ég mun hlaða á mig tani svo ég geti litið eins vel út og þið strákarnir þetta kvöld. Undirbúningsvinna fyrir daginn og kvöldið er jú gulls í gildi.

En fack hvað kvöldið verður skemmtilegt og er ég ofboðslega þakklátur fyrir að eiga svona fjölbreyttan og skemmtilegan vinahóp sem ég fæ að eyða kvöldinu með :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2011 22:44:01 / Grænmetið

Lupe, my man!

Það eru nokkur mál á dagskrá hjá mér í dag, í fyrsta lagi þá vill ég benda öllum á að myndin Warrior er kominn út á góðum gæðum á torrent! Frá mínum bæjardyrum séð þá er þetta besta mynd ársins, heartmoving dæmi sem er í gangi! Tom Hardy er að verða einn svalasti leikarinn í bransanum í dag og enginn furða á að Christopher Nolan er eins æstur í hann og ég er. Hann er alla veganna með leiksigur í þessari mynd ásamt Nick Nolte, atriðið þegar að Nick Nolte dettur í það eftir 1000 daga edrú fack það er eiginlega of mikið, upphafsatriðið þ.e.a.s. samtal Tommy og pabba hans fack, samtal þeirra bræðranna á ströndinni fack og náttlega lokaatriðið fack!!  
Þessi gífurlega reiði og sorg sem endurspeglast í samtölum Tom Hardy við flesta og sérstaklega sína nánustu í gegnum myndina snerti mig. En ég mæli með þessari mynd fyrir þá sem vilja hrista aðeins upp í sjálfum sér, epísk snilld.
 

Fyrst að ég er að tala um mynd ársins að mínu mati þá get ég alveg eins nefnt plötu ársins af mínu mati og er það platan LASERS með Lupe Fiasco, ekki oft sem ég rekst á geisladisk með 6 lögum sem ég get repeat-að. Skil ekki afhverju þessi plata hans fékk ekki meira umtal þar sem hún er margfalt betri en Runaway platan hans Kanye West sem fólk var að dásama og var btw drasl miðað LASERS. Það er mér óskiljanlegt afhverju fólk fýlar Kanye West allt í einu, gamla dótið hans er miklu betra heldur en það nýja sem er einfaldlega sorp í mínum eyrum. Held að margir hverjir hlusti einfaldlega á Kanye West út af einhverri tískubylgju enda er hann einfaldlega ekki að gefa út gott efni. Hey mama sem var mitt uppáhaldslag með honum hefur líka misst merkingu hjá mér eftir að hann fjármagnaði lýtaaðgerð sem mamma hans lést af!!

Seinasta málið sem ég hef á dagskrá er menntakerfi landsins. Ég hef verið að dvelja löngum stundum upp í skóla núna og undantekningarlaust er lið bara á fb og lítið er um lærdóm hjá mörgum hverjum. Síðan er maður að heyra sama lið vera vælandi um hvað námsefnið er þungt og mikið, ég fæ alla veganna stingandi kjánahroll! Mér finnst allt í lagi þegar að fólk sem er að leggja sig fram er að tala um að eitthvað sé erfitt og þungt enda er mismunandi hversu fólk á auðvelt með að læra en þegar að fólk er fyrst og fremst latt og er að tala um einhver erfiðleikastig það fer alveg með mig!! Þá fyrst langar mig til að öskra á lið og segja því að taka þetta erfiðleika tal og troða því upp í rassgatið á sér! Mér finnst eins og lið sem er bara mæta upp í skóla til að líða eitthvað betur með sjálfan eigi að vísa út enda tekur þetta lið bara pláss og þeir sem eru ekki að gera neitt eru hreint og beint truflandi. Spurning hvort maður fari ekki bara að vísa liði af háskólasvæðinu svona á prófatímanum sem er ekki að gera neitt nema vera á fb og með mannalæti í kringum lið sem vill vera að læra. 
Trú mín á menntakerfi landsins er ekki mikil sérstaklega þegar ég er nú að mæta upp í skóla og er að sjá og heyra það sem er í gangi, mér finnst fólk einfaldlega vera komast alltof létt í gegnum nám og metnaður kennara finnst mér oft vera af skornum skammti. Mörg próf í alltof mörgum deildum eru illa unnin og maður er að heyra af gagnaprófum þar sem að kennarar nenna ekki einu sinni að breyta tölum seinasta árs milli ára. Prófdæmi sem eru alveg nákvæmlega eins á milli ára þetta á sérstaklega við um viðskiptafræðideildir háskólanna þar sem ég heyri lítið um próf annars staðar en viðskipta og verkfræðideildum landsins. Ég hef reyndar tekið fá slík próf en þau fáu próf sem ég hef þreytt úr viðskiptafræðideildum háskólanna tveggja eru hreinn og beinn brandari, metnaðarlaus og alltof létt flest öll. Mér finnst rosalega erfið tilhugsun að hugsa til þess að flestir útskriftarnemendur landsins eru að koma úr þessum deildum enda finnst mér ekki merkilegt sem þar fer fram. Auðvitað eru þó fullt af eldkláru liði sem fer og útskrifast úr viðskiptafræði og þekki ég það af eigin reynslu enda var ég að kenna viðskiptafræði kúrs en það verður að fara leggja meiri metnað í þessar deildir. Get ekki ímyndað mér að maður sé ánægður með að komast í gegnum háskólanám nánast án þess að þurfa leggja neitt á sig enda veit maður ekkert úr hverju maður er gerður fyrr en reynir á mann!  Þetta er alveg örruglega svona í alltof mörgum deildum og er viðskiptafræðin ekkert einsdæmi en háskólinn þarf alla veganna virkilega að fara að spá í að endurskoða námsskrá sína eða alla veganna skipta út námsbókum enda fullkomlega óeðlilegt að próf séu algerlega óbreytt milli ára. Ég persónulega vill hafa prófin mín erfið, fack hvað MH tíminn var ljúfur enda eru prófin þar sko ekkert grín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2011 13:40:04 / Grænmetið

Stóra Manúelu málið!

Í gær átti sá stórmerkilegi atburður sér stað að fullt af liði í landinu var að leggja Manúelu lið með að copy paste-a einhvern DÚLLUKRÚTTSPRENGJU texta sem kærastinn hennar skrifaði henni til varnaðar. Ekki get ég sagt að ég hafi verið heillaður af þessari viðleitni almennings, ekki einu sinni pínulítið. Ég veit ekki hvað almenningur var eiginlega að reyna að sanna! Var fólk að reyna að sýna að innst inni þá séu ekki allir sem þrífast á því að skíta fólk út? Eða er fólk að reyna að upphefja sjálfan sig á hærri stall með að segja: „ Ég er ekki svona innrættur!! „ Það er örruglega eitthvað lið þarna úti sem lætur sig varða um málefni annarra en ég þori að veðja að margir sem eru lýsa vanþóknun sinni á stóra Manúelu og Grétars málinu eru að reyna að þykjast vera betri heldur en það er í augum annarra! Hverjum er ekki skítsama um hvað fólk er að skrifa á netinu um Manúelu, ég hef sem betur fer ekki verið að lesa neitt um þetta mál og mér er persónulega alveg sama enda fullt af liði hérna á Íslandi sem ættu ekki að hafa aðgang af internetinu sökum greindarskorts. Eina sem ég hef lesið um þetta mál var það að einhverjir einkaspæjarar voru að taka myndir af Manúelu og ég sagði við sjálfan mig orðrétt þegar ég sá það: „ Noooohhhhh bara byrjað að taka upp nýju James Bond myndina„. Þvílíkur farsi!!!

Til ykkar sem látið ykkur varða svona ofboðslega mikið um málefni annarra og eruð að taka upp handskann fyrir fólk út í bæ sem þið þekkið ekki bið ég ykkur alla veganna fyrst að taka þessa samúð ykkar og lítið í kringum ykkur. Fullt af liði í kringum ykkur sem á bágt og þarf á þessari samúð ykkar og hjálp að halda,byrjiði alla veganna þar. Síðan getiði drullað ykkur upp í hjálpræðisherinn eða rauða krossinn með þessa samúð ykkar og hjálpað liði sem nauðsynlega þarf á þessari góðmennsku ykkar að halda!! Þá fyrst getiði troðið þessum málstað ykkar til almennings og á internetið. Eins og ég sagði áðan þá er ekki vottur af hrifningu í brjósti mínu af þessu framtaki almennings að pósta einhverju vanhugsuðu bréfi á internetið. Gerir það bara að verkum að almenningur heldur áfram að tala um málið og umræða fer að myndast um hver sé vondi kallinn í málinu og báðir aðilar særast enn frekar, fólk líka vex bara í sundur með tímanum og sambönd enda alveg sama hver fer frá hverjum.

Þessi stuðningspóstur í gær minnti mig alveg ótrúlega mikið á það þegar lið sem hefur verið að hjálpa einhverjum eða gera eitthvað sem er ekki beint sjálfsagður hlutur og póstar því á FB!! Fólk virðist ekki mega gera eitt góðverk þá þarf það að flagga því á netið, ég sé ekki alveg tilganginn með því. Ég er ekki: „ Anna póstaði á fb að hún hafi verið að hjálpa mömmu sinni að baka piparkökur, ég reyni kannski við hana af því hún er alveg greinilega góð stelpa“ Síðan er lið að pósta einhverju svona sem maður veit að myndi ekki hika við að stinga mann í bakið við fyrsta tækifæri og er að dreifa slúðri út um allan bæ!! Mér bíður við svona, ég bið undir lokinn lesendur að hafa varann á liði sem er að pósta góðverkum og öðru slíku á netið það eru einstaklingar sem hafa eitthvað að sanna!!  

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2011 17:12:43 / Grænmetið

Peningar skapa peninga!

Ég er alveg ofboðslega ópólítískur og ég nenni helst ekki að leggja það á mig að fara upp í Breiðagerðisskóla til að kjósa þó ég búi nánast hliðin á Breiðagerðisskóla. Ég hef enga skoðun á stjórnmálamönnum nema þá hvað mér finnst þeir asnalegir útlitslega séð og í klæðaburði þannig að í þau fáu skipti sem ég hef lagt ferð undir fót og labbað í kosningamiðstöð Breiðagerðis hef ég einfaldlega skilað auðu. Mér stendur hins vegar ekkert á sama núna hvernig í ósköpunum getum við Íslendingar hafnað risatilboði frá þessum Núpó Létt gaur frá Kína! Gaurinn ætlaði að fjárfesta mörgum milljörðum í íslenskt efnahagslíf btw peningum sem eru ekki í eigu íslensku ríkisins heldur peningum frá erlendum bönkum sem hefði verið ágætis tilbreyting!! Hvernig erum við í aðstöðu til þess að hafna slíku tilboði,hvernig erum við í aðstöðu til að segja nei við þeim störfum sem þessir peningar hefðu skapað? Atvinnuleysi hérna á Íslandi er í kringum 10% og fullt af fólki sem hefur það virkilega skítt og skuldar mikinn pening. Þessi störf væru vonarglæta í augum margra hér á landi, ljós í myrki!!
Ég veit eiginlega ekki hvað Ögmundur heldur að hann sé að geta hafnað þessu tilboði, peningar skapa peninga það er örruglega skrifað um það í biblíunni einhvers staðar? Gefið mér 10 daga og ég skal fá hærra heldur en hann í hvaða stjórnmálafræðiprófi sem er, þessi gaur er ekkert í mínum augum.Þó að hann og þessi flokkur hans eru ekki tilbúinn að brjóta gegn málefnum VG og heimila stóriðju eigum við Íslendingar að gjalda fyrir það? Enda er ekkert sem bíður okkar flestra í þessu efnahagsástandi. Ég get náttlega bara talað um fyrir sjálfan mig og kannski flott ef ég lýsi þeim sporum sem ég er í og það sem er líklegt í fljótu bragði fyrir mig:

Ég er 26 ára gamall og stefni ég á að ljúka mastersverkefni mínu í febrúar-mars á næsta ári. Ég hef verið að sækja um störf í tæplega 1. ár og hef ég m.a. sótt um störf sem hafa ekki heillað mig nokkurn skapaðan hlut. Um þessi fáu störf sem eru í boði þá sækja svona á bilinu 100-150 manns um, mikið af þessu er fólk sem er með mikla reynslu á vinnumarkaðnum og ganga því augljóslega fyrir og hafa forskot á mig hvað það varðar. Ég hef dottið í viðtöl, veit þó ekki hvað það þýðir eða hversu nálægt ég hef verið að fá störfin en miðað við allan fjöldann sem sækist eftir þessum örfáu störfum þá er samkeppnin gríðarleg.Þessar ráðningarskrifstofur segja síðan við mann: „ Heyrðu ég myndi bara reyna að redda mér vinnu í gegnum sambönd“ , ekki alveg það sem maður vill heyra þegar maður lifir ekki við þann lúxus að þekkja einhvern sem getur reddað manni vinnu við það sem maður vill vera að gera.
Þegar ég klára verkefnið mitt þá mun ég væntanlega þurfa að vera á atvinnuleysisbótum, fyrstu mánuðina þarf ég að nota til þess að borga mínar skuldir sem eru sem betur fer nánast engar en bæturnar eru jú ekki þær hæstu.Þegar ég hef borgað minn yfirdrátt þá þarf ég einhvern veginn að safna mér aur til þess að kaupa mér flugfar til útlanda og lifa þar á meðan ég leita mér að vinnu ég veit ekki hvað það þarf að vera mikill peningur en það eru nokkrir mánuðir til viðbótar á bótunum enda eru líkurnar á að finna sér gott starf í þessu efnahagsástandi sáralitlar. Ekki það að ég vilji vera baggi á samfélagið og brýtur það gegn mínum lífsgildum að láta aðra sjá fyrir mér en lítið annað sem maður getur væntanlega gert. Ég þarf að fara til útlanda að vinna, þó að Ögmundur og hans flokksmenn eru í einhverjum hanaslag þarna á þingi við að reyna að brjóta ekki gegn reglum flokksins með stóriðju þá þarf ég væntanlega að brjóta gegn mínum lífsgildum og draumum. Myndi kannski vilja flytja út ef ég væri með stelpu og myndi flytja út með henni en fyrst að ég er á lausu þá vill vera hérna hjá fjölskyldunni minni og vinum. Ég vill ekki kynnast einhverri útlenskri stelpu og þurfa tjá tilfinningar mínar á einhverju öðru tungumáli en mínu eigin, ég vill geta skýrt barnið mitt íslensku hefðbundnu nafni og ég vill að barnið mitt fái að vera oftast í kringum alla ættingja sína líkt og ég fékk.Auðvitað eru Íslendingar um heim allan en þeir eru í minnihluta í útlöndum og alls ekki líklegt að það séu margir á þeim stað sem maður myndi lenda og hvað þá einhver sem maður myndi falla fyrir.

Þessi Ögmundur getur auðvitað vel við látið á sínum alþingismannalaunum ekki kvartar hann yfir efnahagsmálunum enda hefur hann aldrei haft það betra og núna launalega séð. Eina sem hann hugsar um er að hafa flokkinn góðan svo hann geti haldið áfram að casha inn þessum launum sínum sem hafa aldrei verið hærri. Það er ekkert verið að hugsa um þá sem virkilega þurfa á því að halda að efnahagsmálin fari að skánna, atvinnulausir og þeir sem eru að koma úr námi.Það er ekkert verið að hugsa um að koma efnahagsmálunum á stað fyrir þá.Spurning með að senda Ögmundi reikning fyrir því ef ég bíð einhverri stelpu út að borða og í bíó, ég hef alla veganna ekki efni á því og engin tegn á lofti um að það sé að fara breytast í bráð.
Ég vill einfaldlega að allt komist í lag hérna og það sé alla veganna reynt að bregðast við þeim tækifærum sem bjóðast við að koma efnahagslífinu í eðlilegan farveg jafnvel þó að brotið sé á málefnum einhvers flokks. Enda verða hagsmunir þjóðarinnar að vera forgangsatriði ekki eitthvað innanhús rúnkmál Vinstri grænna með að halda einhverjum grasblettum á Grímsstöðum. Ég skil bara ekki hvernig nokkur maður getur sætt sig við þessa niðurstöðu. Þessi Núpó Létt gaur leit líka bara út fyrir að vera fáranlega nettur gaur, maður ætti kannski að reyna að bendla þetta mál við rasisma þar sem um leið og einhver þjóðþekktur er bendlaður við rasisma þá verður allt alveg brjálað!! „Ögmundur setti stopp á stóra Núpó-létt málið af því honum er illa við kínverja“ gæti orðið virkilega skemmtileg fyrirsögn.


Auðvitað er framtíð manns algerlega óljós en þetta er það sem blasir við mörgum sem eru í mínum sporum. Ég sit þó stefnuna á að redda mér einhverju að gera hér á landi og vera hérna með fjölskyldu minni og vinum þó svo að Ögmundur sé ekkert að hjálpa til. Einnig sit ég stefnuna á að tjá tilfinningar mínar á íslensku til stelpu enda sáralítill rómeó á ensku eða einhverjum norðurlandamálum, gæti kannski fengið Hlyn til að hjálpa mér að bæta úr því ef að ekkert rætist úr efnahagslífinu í landinu enda með stórkostlegt record í útlöndum!!

Gott að enda þessa færslu á orðum Friðjóns enda eiga þau vel við:“ Helvítis Ögmundur!!“


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2011 14:25:32 / Grænmetið

Svona tiltölulega flawless!

Hver einn og einasti hefur sína kosti og galla enda enginn fullkominn. Í mörgum tilfellunum eru gallaranir eitthvað sem viðkomandi ræður ekki við og ekkert út á það svo sem að sitja og geta verið fjölskyldutengdir, líkamlegir eða heilsufarstengdir hlutir sem viðkomandi getur ekki stjórnað. Gallarnir samt í fari fólks sem það hefur áunnið sér á lífsleiðirnir eru hins vegar miklu verri, auðvitað getur mannvonska verið að hluta til meðfædd en ég vill meina að fólk sem er ekki löglega þroskaheft geri sér fullkomlega grein fyrir því þegar það svíkur, særir, meiðir og geti þar af leiðandi stjórnað sínum hvötum og gjörðum.
Þegar maður kynnist liði í fyrstu skiptin þá sýnir lið undantekningarlaust kosti sína, passar að sýna ekki gallana líkt og frodo passaði að sýna ekki hringinn enda snýst ótrulega margt í þessu lífi um first impression og leiða fólk í ástarnetið áður en BOMBUNNI er t.d. droppað á lið: „heyrðu ég er með barnahneigð og ég á það til að halda framhjá þér á djamminu og fá mér í nefið“. Ingvar vinur minn vill meina að maður sjái ekki gallanna fyrr en eftir 2-3 mánuði ég er kannski ekki alveg sammála því en það er margt til í þessu hjá honum og fólk felur gallanna í fyrstu enda miklu meiri líkur á að þeir fæli fólk frá en kostirnir. Það kemur samt oftast sá tímapunktur að BOMBAN springur og fólk sýnir sitt rétta andlitið og getur ekki falið sig lengur á bakvið grímuna sína og gallarnir því komnir á borðið, hvort að mótaðili höndli sprengjubrotin kemur þá í ljós ef bomban er ekki stórvægileg þá sleppur þetta þó í flestum tilfellum enda tekur maður tillit til galla þeirra sem maður elskar. Þess vegna finnst mér alveg fáranlegt þegar ég heyri eða frétti af að lið er að meta fólk eftir kostum og göllum, ég hef alltof oft heyrt lið vera að tala um kosti og galla einhvers stráks/stelpu sem það hefur verið að spá í. Yfirleitt eru kostirnir alveg út í hött og gallarnir alíka fáranlegir enda getur maður engan veginn áttað sig á þessum hlutum strax enda þarf maður að eyða mörgum klst með manneskjunni til þess að átta sig á öllum kostum og göllum sem viðkomandi hefur upp á að bjóða. Frodó var nú ekkert mikið fyrir að sýna hringinn.
Hámark fáranleikans er samt þegar að maður heyrir t.d. einhvern vera bera saman tvo einstaklinga, FACK!
 „ Sigga hleypur hraðar heldur en Anna“
„ Anna fékk hærri meðaleinkunn heldur en Sigga í skólanum“
„ Foreldrar Siggu eiga meiri pening heldur en Önnu“

Samanburðurinn er yfirleitt á þessum nótum, án gríns. Innihaldslaus og einhver leið til að réttlæta fyrir sér eitthvað val sem viðkomandi þarf eða neyðist brátt til þess að taka og er hvort sem er búinn að taka í hjartanu(Á við val á strák/stelpu). Til hvers eiginlega að vera gera slíkar kröfur á lið með að vera búinn að gefa því fyrirfram ákveðna kosti og galla? Maður verður bara fyrir vonbrigðum þegar maður gerir kröfur á að fólk standi undir einhverjum væntingum raunhæfum jafnt sem óraunhæfum. Það er nú yfirleitt þannig að fólk bregst manni þrátt fyrir væntingar, ástvinir, vinir og aðrir sem er eitthvað sem maður getur því miður ekki séð fyrir þegar maður kortleggur fólk.
Er ég því einungis farin að setja eina kröfu á lið, ég veit ekki hvort að ég sé svona einfaldur og að fólk setji almennt fullt af kröfum á lið og að maður þurfi að standa undir fyrirfram ákveðnum kostum og megi ekki fara yfir einhvern ákveðinn gallafjölda, ef svo er þá þarf fólk að fara í alvarlega sjálfsskoðun. Fólk þarf að koma vel fram við mig og sýna mér virðingu er mín eina krafa enda eina krafan sem ég er sjálfur farinn að geta staðið við eða í langflestum tilfellum alla veganna þegar ég er edrú(Vona að enginn erfi Unnar við mig!) :) Mér finnst þetta ekki til mikils ætlað og þeir sem ég hef og hleypi nálægt mér þurfa að bera þennan kost, það er alla veganna kostur þegar einhver kemur vel fram við mann þó svo að nokkrir líti á það sem einhvern galla og láti ítrekað koma illa fram við sig. Ég er farinn að sigta út lið sem kemur illa fram við og mun halda því áfram enda velur maður þá sem maður umgengst og ég mæli með að fólk geri það sama. Vona svo sannarlega að ég sé ekki á neinum svona lista eða endi á slíkum lista enda mun ég aldrei getað staðið undir honum hvorki sem fjölskyldumeðlimur, vinur né kærasti.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 37
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 172229
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 419 dögum
Jólahlaðborð, kjötsviti og almenn skemmtun
Leitarbox

Myndasöfn